Kjúklingur með beikoni


Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 16337

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Kjúklingur með beikoni.

4 kjúklingabringur
125 grömm rjómaostur með kryddblöndu
50 grömm rifinn ostur
2 teskeiðar grófkorna sinnep eða dijon sinnep
Nýmalaður pipar
8-12 sneiðar magurt beikon
250 grömm kirsuberjatómatar

Aðferð fyrir Kjúklingur með beikoni:

Hitaðu ofninn í 200 gráður. Leggðu kjúklingabringurnar á bretti og skerðu djúpan vasa í aðra hliðina á hverri þeirra með beittum hníf. Hrærðu saman rjómaosti, rifnum osti og sinnepi. Skiptu blöndunni í fjóra hluta og fylltu bringurnar. Kryddaðu þær með dálitlum pipar og vefðu svo 2-3 beikonsneiðum utan um hverja bringu. Raðaðu þeim í eldfast mót og dreifðu tómötunum í kring. Steiktu kjúklinginn og tómatana í ofninum, í um 20 mínútur, eða þar til bringurnar eru steikar í gegn og ostayllingin farin að bráðna. Berðu bringurnar og tómatana fram í mótinu eða settu á fat, skafðu bráðinn ost og soð úr mótinu, hærðu það saman og berðu það fram með sem sósu.


þessari uppskrift að Kjúklingur með beikoni er bætt við af Sylvíu Rós þann 22.06.10.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Kjúklingur með beikoni
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Kjúklingauppskriftir  >  Kjúklingur með beikoni