Humar uppskrift - Grillaður humar


Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 10619

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

þú þarft eftirfarandi hráefni í þessa uppskrift af grilluðum humar:

250 grömm humar
250 grömm hörpuskel, má líka nota annan þéttan fisk
Safi úr einni sítrónu
3-4 hvítlauksrif, marin
2 matskeiðar ólífuolía
1 handfylli fersk steinselja, söxuð (má sleppa)
Rósmaringreinar
Salt og grófmalaður pipar

Aðferð:

Blandið saman sítrónusafa, ólífuolíu, hvítlauk, steinselju, saltið og piprið aðeins. Þræðið fiskinn upp á rósmaringreinarnar og penslið með blöndunni. Grillið í 1-2 mínútur á hvorri hlið. Berið fram með fersku salati, sósu og grilluðum sítrónubátum.


Humar uppskrift - Grillaður humar er bætt við af Sylvíu Rós þann 13.07.10.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Humar uppskrift - Grillaður humar
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Fiskiuppskriftir  >  Humaruppskriftir  >  Humar uppskrift - Grillaður humar