Humar súpa


Árstíð: Allt árið - Fyrir: 6 - Fitusnautt: Nei - Slög: 7841

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Humar súpa.

1 kíló humar með skel (hörpuskelfiskur, steinbítur eða blandaðir sjávarréttir)
1 líter vatn
2 laukar
2 rif hvítlaukur
2-3 gulrætur
1 stór kjúklingateningur
1 lítil dós Hunt´s tómatar með basílikum, hvítlauk og oregano
Smjörbolla (cirka 90 grömm smjör og 100 grömm hveiti)
1/4 líter rjómi
1/4 líter matreiðslurjómi
Dass af koníaki eða sherrý
Sítrónusafi, sítrónupipar og salt eftir þörfum
Evt. hvítvín

Aðferð fyrir Humar súpa:

Humarinn hreinsaður úr skelinni. Skeljarnar, vatnið, evt. smá hvítvín, laukar, gulrætur, teningur og tómatar soðið í 2 klukkustundir. Á meðan er humarinn snyrtur, skorinn í 2-3 bita, kryddaður með sítrónusafa og sítrónupipar og látinn í skál í ískáp á meðan hitt sýður. Soðið er síað, bakað upp með smjörbollunni og þynnt með rjómanum. Súpan er bragðbætt með salti og með koníaki. Humarinn er settur í súpuna rétt áður en hún er borin fram með góðu snittubrauði.

þessari uppskrift að Humar súpa er bætt við af Elinborgu Baldvinsdóttur þann 04.11.07.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Humar súpa
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Súpuuppskriftir  >  Humar súpa