Humar í kampavínssósu


Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 7314

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Humar í kampavínssósu.

1 kíló skelflettur humar
1 meðalstór laukur, fínsaxaður
2 matskeiðar smjör
2 matskeiðar olía
½ rauð og ½ græn paprika, skorin í teninga
Salt og pipar

Kampavínssósa:
2 desilítrar þurrt freyðivín
1 peli rjómi
Fiskikraftur
Kjötkraftur
Maizena mjöl til að þykkja


Aðferð fyrir Humar í kampavínssósu:

Sjóðið freyðivínið í potti ásamt rjómanum. Bætið krafti út í og þykkið með maizena. Kryddið með salti og pipar. Steikið humarinn upp úr smjöri og olíu á stórri pönnu ásamt lauknum. Kryddið. Hellið sósunni yfir og setjið paprikurnar út í. Látið þetta malla í eina mínútur. Berið fram með ristuðu brauði og smjöri.


þessari uppskrift að Humar í kampavínssósu er bætt við af Sylvíu Rós þann 29.05.10.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 28 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Humar í kampavínssósu
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Fiskiuppskriftir  >  Humaruppskriftir  >  Humar í kampavínssósu