Grillbrauð


Árstíð: Sumar - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Já - Slög: 5584

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Grillbrauð.

5 desilítrar hveiti
5 desilítrar heilhveiti
1/2 teskeið salt
1/2 - 1 matskeið sykur
1 matskeið kúmen (má sleppa)
1 matskeið þurrger
1 1/2 desilíter fingurvolgt vatn
Álpappír

Aðferð fyrir Grillbrauð:

Setjið hveiti, heilhveiti, salt, sykur, kúmen og þurrger í skál. Mælið fingurvolgt vatn (það má alls ekki vera heitara), hellið út í og hrærið saman. Hnoðið örlítið með höndunum. Fletjið út með kökukefli eða mótið lítil brauð með höndunum. Setið á álpappírsbút. Ef þetta er flatt út í stóran flöt þarf að skera í flötinn með hnífsegg (kleinujárni). Hitið grillið. Setjið grind í miðjuna á grillinu. Leggjið álpappírinn með brauðinu á grillið og bakið í 3-5 mínútur. Snúið álpappírnum með brauðinu við, þannig að álpappírinn er nú ofan á því. Grillið áfram í 3 mínútur. Fylgist vel með því þetta er fljótt að brenna.

Þegar baka á brauð í útilegu, má seta öll þurrefnin í plastpoka og bæta fingurvolgu vatni saman við á staðnum. Borið fram heitt með smjöri.

þessari uppskrift að Grillbrauð er bætt við af Elinborg Baldvinsdóttir þann 04.09.07.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Grillbrauð
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Brauðuppskriftir  >  Grillbrauð