Gæs með góðri sósu


Árstíð: Haust - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 21148

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Gæs með góðri sósu.

4 gæsabringur
Salt
Pipar
Tímían

Sósa:
Soð
Sveppir
Rjómi
Gráðostur eða rifsberjahlaup

Aðferð fyrir Gæs með góðri sósu:

Brúnið gæsabringurnar á pönnu í cirka 3 mínútur á hvorri hlið, við háan hita og kryddið með salti, pipar og tímíani. Takið bringurnar af pönnunni og skerið þær í þunnar sneiðar þvert á vöðvann og raðið í eldfast mót. Setjið vatn á pönnuna og losið um þær skófir sem myndast hafa. Sigtið þetta og notið sem soð í sósu.

Sósan:
Steikið sveppina á pönnu og hellið soði og rjóma útá, jafnið með sósujafnara. Bætið 1-2 matskeiðum af rifsberjahlaupi eða gráðosti útí. Bara annaðhvort ekki hvortveggja. Sósunni er hellt yfir gæsina og þetta er sett inn í ofn og hitað við 180 gráður í 20 mínútur.

Með réttinum er gott að hafa brúnaðar kartöflur, perur skornar í ræmur og velt upp úr púðursykri á pönnu, Waldorfsalat og ef vel liggur á okkur má líka hafa rósakál.

þessari uppskrift að Gæs með góðri sósu er bætt við af Elinborgu Baldvinsdóttur þann 24.10.07.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Gæs með góðri sósu
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Villibráð  >  Gæs með góðri sósu