Bananabrauð - Uppskrift af bananabrauði


Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 11593

Senda með tölvupóstPrenta út

Hráefni:

Þú þarft eftirfarandi hráefni í þessa uppskrift af bananabrauði:

3-4 þroskaðir bananar
2 ½ desilítrar All-Bran eða annað mjög trefjaríkt morgunkorn
1 desilítrar matarolía
2 desilítrar sykur
2 egg
5 desilítrar hveiti
1 ½ teskeið lyftiduft
½ teskeið salt
1 desilítri grófsaxaðar hnetur

Aðferð:

Stappið bananana og blandið All-Brani saman við. Látið standa í 3 mínútur eða þar til kornið er orðið lint. Þeytið saman olíu, egg og sykur í annari skál. Blandið banana-hrærunni saman við eggjablönduna. Blandið saman hveiti, lyftidufti, salti og hnetum og bætið í deigið. Setjið deigið í smurt aflangt kökuform. Bakið á neðstu rim í ofni við 180 gráður ,í um eina klukkustund. Kælið vel áður en brauðið er sneitt. Gott er að vefja rökum klút um brauðið á meðan það kólnar.


Bananabrauð - Uppskrift af bananabrauði er bætt við af Sylvíu Rós þann 13.07.10.

Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun
Uppskriftir vikunnar

Fáðu vikulegt fréttabréf:
Fréttabréf með uppskriftum vikunnar
Skrá Afskrá
Nú eru 29 áskrifendur.


Veftré | RSS | © HEPHEY 2002 - 2008

Bananabrauð - Uppskrift af bananabrauði
Hér ert þú  :   Uppskriftir  >  Matur  >  Brauðuppskriftir  >  Bananabrauð - Uppskrift af bananabr...